





Jólapeysa Vals
6,900 kr
Við eigum von á jólapeysum Vals til Reykjavíkur um 9. desember. Við hefðum gjarnan viljað fá þær fyrr, en við völdum þessa leið til að halda verðinu niðri og vonum að þið sýnið því skilning. Við sendum þér tölvupóst um leið og peysan þín er tilbúin til afhendingar á Hlíðarenda.
Rauð og hvít jólapeysa fyrir litla og stóra Valsara. Valsfálkinn prýðir framhliðina og á bakinu stendur „Áfram hærra“. Peysan er prjónuð úr 100% akrýl.
Hvaða stærð hentar?
Veldu peysu sem passar vel á þann sem á að fá jólapeysuna. Leggðu hana flata á borð með framhliðina upp. Sléttu úr bol og ermum án þess að teygja á prjóninu.
A · Brjóstbreidd
Finndu sauminn þar sem ermin mætir bolnum undir handleggnum. Færðu þig 2,5 cm niður og mældu beint þvert yfir peysuna frá einni hlið til annarrar. Ef málbandið sýnir 53 cm skaltu leita að 53 cm í dálki A.
B · Sídd
Settu enda málbandsins þar sem öxlin mætir hálsmálinu. Mældu beint niður að neðstu brún stroffsins á bolnum.
C · Ermalengd
Réttu úr annarri erminni. Byrjaðu efst á öxlinni þar sem ermin er saumuð við bolinn og mældu eftir erminni að ystu brún stroffsins við úlnliðinn.
Berðu öll þrjú málin saman við stærðartöfluna. Mál á hverri peysu geta vikið allt að 2 cm frá töflunni. Lítið magn er til í hverri stærð og því getur verið erfitt að skipta.
| Stærð | A · Breidd | B · Sídd | C · Ermi |
|---|---|---|---|
| 4–6 ára | 38,5 cm | 46 cm | 40 cm |
| 8–10 ára | 44,5 cm | 51 cm | 50 cm |
| 10–12 ára | 47,5 cm | 53,5 cm | 55 cm |
| S | 53 cm | 69 cm | 62 cm |
| M | 56 cm | 70 cm | 62,5 cm |
| L | 59 cm | 71 cm | 63 cm |
| XL | 62 cm | 72 cm | 63,5 cm |